Fotbolti.net
20.07.23 - 23:36
Brynjar Ingi Erluson

Pablo ósáttur við dómgæsluna: Ég veit ekki hvað þeir voru að pæla

Auglýsing
Pablo ósáttur við dómgæsluna: Ég veit ekki hvað þeir voru að pæla
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Pablo Punyed, leikmaður Víkings, var ánægður við frammistöðuna í 1-0 sigrinum á Riga en auðvitað svekktur að liðið sé úr leik í Sambandsdeildinni.
Víkingar töpuðu 2-0 í Lettlandi og beið því erfitt verkefni í Víkinnig en þeir fengu svo sannarlega tækifærin til þess.

Eitt mark var niðurstaðan en Helgi Guðjónsson gerði það undir lok leiks og gaf Víkingum von en annað markið kom aldrei.

„Mér fannst við miklu betri en þeir. Við fengum góð færi, Niko með skalla í slá og svo fáum við 1-2 góð færi og jafnvel 1-2 víti fannst mér en þetta réðist svolítið á smáatriðum.“

„Já, okkur fannst það og við vitum að þeir voru orðnir þreyttir en það var því miður ekki nóg. Ég er rosalega stoltur af okkar leikmönnum og sérstaklega þeim sem komu inná og það er nákvæmlega það sem við þurfum.“

„Þeir gátu ekki tengt 3-4 sendingar í seinni hálfleik en þeir voru með tveggja marka forystu sem er mjög gott forskot fyrir svona Evrópuleiki. Við unnum samt í dag og það er jákvætt og nú stefnum við að því að vinna deildina og komast eins langt og við getum í bikarnum,“
sagði Pablo við Fótbolta.net.

Pablo fannst halla aðeins á dómgæsluna í leiknum en Víkingar vildu fá tvö og jafnvel þrjú víti í leiknum og þá sérstaklega undir lokin er þeir kölluðu eftir hendi á varnarmann Riga.

„Ég sá alla vega hendina. Þetta er ekki í boði fyrir dómarana að sjá þetta ekki. Hann dæmir ekki og við töpum þessu einvígi, en ég er ekki búinn að sjá atriðið með Danna en varnarmaður þeirra sagði að þetta væri víti. Þetta er svekkjandi.“

„Mér fannst hún (dómgæslan) fín stærstan hluta leiksins en þessi stóru atriði voru bara víti, alla vega þessi tvö atriði. Ég skil ekki hvað þeir eru að pæla eða hvert þeir voru að horfa. Mér fannst þetta í lokin víti, hann handleikur boltann inn í teig og það er bara víti, en hann dæmir hendi á móti okkur. Bara til hamingju Riga og nú horfum við í leikina sem eru fram undan,“
sagði Pablo ennfremur en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Pablo ósáttur við dómgæsluna: Ég veit ekki hvað þeir voru að pæla
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.