Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 20. september 2020 16:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Real Madrid vildi ekki fá Dele Alli á láni
Dele Alli.
Dele Alli.
Mynd: Getty Images
Tottenham er að reyna að losa sig miðjumanninn Dele Alli.

Fabrizio Romano, sem veit allt þegar kemur að leikmannamarkaðnum, segir að Lundúnafélagið hafi boðið öðrum félögum að kaupa Alli síðustu daga.

Romano segir að Tottenham vilji losa sig við Alli eftir að Gareth Bale kom aftur til félagsins frá Real Madrid.

Romano segir jafnframt að Real Madrid hafi ekki viljað fá hann á láni í staðinn fyrir Bale. Paris Saint-Germain hefur áhuga á Alli og er að ræða við umboðsmenn hans.

Alli er 24 ára gamall og var búinn að festa sig í sessi í byrjunarliði enska landsliðsins á HM 2018 en hefur síðan þá misst sætið. Alli er sagður á förum frá Tottenham en samkvæmt enskum slúðurblöðum hefur Mourinho áhuga að fá fyrrum lærisvein sinn, Jesse Lingard, til Spurs.

Mourinho sagði eftir sigur á Southampton í dag að Alli væri enn í áformum sínum en það á enn eftir að koma í ljós.


Athugasemdir
banner
banner
banner