Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 20. september 2020 11:46
Ívan Guðjón Baldursson
Telegraph: PSG er í viðræðum við Tottenham
Mynd: Getty Images
Telegraph heldur því fram að PSG sé í viðræðum við Tottenham um félagaskipti enska miðjumannsins Dele Alli, sem hefur ekki verið í leikmannahópi Tottenham síðan liðið tapaði gegn Everton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar fyrir viku síðan.

Alli, sem er 24 ára og hefur spilað 223 leiki á fimm árum hjá Tottenham, myndi fara til PSG á lánssamningi út tímabilið.

Jose Mourinho er ekki ánægður með framlag Alli til liðsins en það er gríðarlega mikil samkeppni í hópi Tottenham um stöðuna í holunni fyrir aftan fremsta mann.

Giovani Lo Celso og Tanguy Ndombele geta leyst stöðuna af hólmi rétt eins og Moussa Sissoko og Gedson Fernandes.

Hjá PSG myndi Alli hitta nokkra fyrrum úrvalsdeildarleikmenn á borð við Idrissa Gana Gueye, Angel Di Maria og Ander Herrera.
Athugasemdir
banner
banner