09.10.26 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Íslands - Systur byrja
Skrifar frá Pula í Króatíu

Arna Eiríksdóttir og Hlín Eiríksdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hafrún Rakel byrjar í vinstri bakverðinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thelma Karen byrjar á hægri vængnum.

Mynd: KSÍ

Arna Eiríksdóttir og Hlín Eiríksdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Búið er að opinbera byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Króatíu í umspili fyrir HM. Þetta er fyrri leikur liðanna en seinni leikurinn er á Íslandi í næstu viku.
Frá líklegu byrjunarliði Fótbolta.net í gær er ein breyting.
Frá líklegu byrjunarliði Fótbolta.net í gær er ein breyting.

TENGT EFNI
Líklegt byrjunarlið Íslands - Mikilvægir leikmenn fjarverandi

Frá líklega byrjunarliðinu sem kemur Hafrún Rakel Halldórsdóttir inn í vinstri bakvörðinn.
Það er athyglisvert að systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur byrja báðar fyrir Ísland í þessum leik.
Linda Líf Boama, Sandra María Jessen og Sædís Rún Heiðarsdóttir eru allar á meiðslalistanum og þá á Ingibjörg Sigurðardóttir von á sínu fyrsta barni. Þær eru því ekki með í þessu verkefni.
Leikurinn hefst 16:45 og er í beinni textalýsingu hjá Fótbolta.net.

Hafrún Rakel byrjar í vinstri bakverðinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thelma Karen byrjar á hægri vængnum.

Mynd: KSÍ

