Fotbolti.net
09.10.26 - 16:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vilja fá gamla Þróttara heim og hafa rætt við Viðar Ara

Viðar Ari

Viðar Ari

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Í risastóra slúðurpakkanum sem birtur var í gær voru m.a. þeir Viðar Ari Jónsson og Aron Bjarnason orðaðir við Þrótt.

Báðir eru þeir með tengingu við Þrótt, Aron Bjarnason lék með Þrótti í yngri flokkum og Viðar Ari lék bæði með Þrótti og Fjölni.

Viðar Ari er á leið heim eftir atvinnumannaferil erlendis, hann er leikmaður HamKam í Noregi en mun halda heim í vetur. Hann er orðaður við Breiðablik, Stjörnuna og Val ásamt Þrótti. Aron er leikmaður Breiðabliks og er með skráðan samning við félagið út næsta tímabil.
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti
TENGT EFNI

Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti

Kristján Kristjánsson, formaður fótboltadeildar Þróttar, segir við Fótbolta.net að félagið vilji fá gamla Þróttara heim og staðfestir að félagið hafi rætt við Viðar Ara um möguleikann að koma heim.

„Við höfum rætt við Viðar Ara og höfum svo sem gert það áður þegar möguleiki var á heimkomu. Við höfum áhuga á því að fá gamla Þróttara heim," segir Kristján.

„Aron er samningsbundinn Breiðabliki, við höfum ekki haft samband við Blika en höfum í gegnum tíðina sýnt áhuga á því að fá hann aftur," bætir formaðurinn við.

Þróttur verður í Bestu deildinni á næsta tímabili eftir að hafa komist upp úr Lengjudeildinni í ár.
Aron Bjarnason

Aron Bjarnason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.