Anton Ingi spáir í 3. umferð Bestu eftir skiptingu

Anton Ingi Rúnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram mætir KR annað kvöld í rosalegum leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefan Ljubicic hefur verið iðinn við kolann á tímabilinu..

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur hefur nú þegar tryggt sér sigur í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári, þjálfari KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV mætir Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Ingi Rúnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram 3 - 2 KR (19:15 á morgun)
Reykjavíkurleikirnir gerast ekki mikið stærri en þessi. Stúkan í Dalnum er farin að hristast og stefnir í nýjan þjóðhátíðardag í Dal draumanna. Leikurinn verður mun opnari en fólk spáir fyrir og byrja Framarar sterkt með Róbert Hauksson fremstan í flokki sem sleppur innfyrir og skorar fyrsta mark leiksins. KR-ingar eru þekktir fyrir skjótsvör og mun Aron Sig halda sínu formi áfram og skora draumamark strax í kjölfarið. Framarar mæta harðir til leiks í seinni halfleik og mun fyrrum KR kóngurinn Kennie skora með skalla eftir hornspyrnu og Fred mun fylgja í kjölfarið með mark úr aukaspyrnu. Galdur klórar í bakkan undir restina en það verður of seint og Framarar taka bílstjórasætið í baráttunni um 2. sætið.
Breiðablik 3 - 1 Keflavík (19:15 á morgun)
Hér eru Evrópumennirnir farnir að huga að næsta tímabili og Óli farinn að skoða möguleikana í spili fyrir næsta tímabil sem mun fara hrikalega vel af stað og verða Blikar 3-0 yfir í hálfleik og mun Þorleifur starta veislunni í Kópavogi. Stebbi Ljub mun halda áfram að telja inn mörkin á þessu tímabili og skorar um miðja seinni hálfleik og Blikar bæta honum á félagaskiptalistann sinn eftir það.
Víkingur R. 3 - 1 ÍA (19:15 á morgun)
Skagamenn mæta vel gíraðir í Víkina eftir sigur í síðasta leik meðan Víkingar bíða eftir að geta checkað sig inn hjá Icelandair og hoppað af landi brott eftir sigur í Bestu deildinni. Skaginn skorar snemma leiks Viktor Jóns rís hæst manna og skallar hornspyrnu í netið og virðast Skagamenn ætla að sér að ganga enn frekar á lagið þegar vítaspyrna er dæmd en Aron Snær mun sjá til þess að Víkingar lendi ekki með bakið upp við vegg og sér við Viktori. Þá er komið að Skagamanninninum Ármanni Inga að mála upp þá mynd að hann tapi ekki fyrir sínum gömlu félögum og setur upp flugeldasýningu þrjú mörk frá þessum frábæra málara, Víkingsvélin mallar áfram og biðin eftir bikarnum styttist.
Neðri hluti
Stjarnan 2 - 3 KA (14:00 á morgun)
Með Chelsea goðsögnina í brúnni er KA vélin farin að malla og halda þeir sigurgöngunni áfram eftir Akureyraslaginn í síðustu umferð. Adam Ægir heldur áfram að skora og kemur sínum mönnum í 0-2 í fyrri hálfleik en markakóngurinn Andri Rúnar heldur Stjörnunni á lífi með því að setja 2 snögg mörk í seinni háfleik en Jakob Snær setur sigurmarkið undir lok leiks.
Valur 1 - 2 FH (14:00 á morgun)
FH er komið á bragðið og tekst með þessum sigri að slíta sig frá fallinu. Valur er að bíða eftir að geta byrjað nýja vegferð á Hlíðarenda og mun leikurinn sýna það hvort liðið hefur að meiru að keppa. Kjartan Kári og Gils sjá um mörk FH en Patti P skorar mark Vals. FH-ingum gífurlega létt og geta sest á teikniborðið fyrir næsta tímabil.
Þór 0 - 1 ÍBV (14:00 á morgun)
Lokaðisti leikur umferðarinnar, bæði lið hrædd um að missa af lestinni en bæði lið þurfa að vinna til þess að halda í hana. Það mun bera mest á spjöldum, tuði og miklum hita í leiknum þar sem mikið er undir fyrir bæði lið. En það mun bera til tíðina á 87mínutu þegar Eyjapeyjar fá aukaspyrnu á góðum stað við D-bogan og mun fyrirliðinn taka knöttinn og snúa honum beint uppí samúel og taka RISASTÓR 3 stig til Eyja og halda eyjunni á lífi.
Fyrri spámenn:
Brynjar Bergsson (5 réttir)
Damir Muminovic (4 réttir)
Elmar Kári (4 réttir)
Ragnar Bragi (4 réttir)
Gísli Gotti (4 réttir)
Gummi Tyrfings (3 réttir)
Óðinn Bjarka (3 réttir)
Tómas Óli (3 réttir)
Daníel Freyr (3 réttir)
Tómas Guðmunds (3 réttir)
Júlíus Mar (3 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Hinrik Harðar (2 réttir)
Stefán Páls (2 réttir)
Karl Ágúst (2 réttir)
Mattías Kjeld (2 réttir)
Viðar Örn (2 réttir)
Helga Rut (2 réttir)
Birkir Már (2 réttir)
Kári Sigfússon (2 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Bjartur Bjarmi (0 réttir)

Fram mætir KR annað kvöld í rosalegum leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefan Ljubicic hefur verið iðinn við kolann á tímabilinu..

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur hefur nú þegar tryggt sér sigur í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári, þjálfari KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV mætir Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
