Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 20. september 2021 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bissouma: Ég vil spila í Meistaradeildinni
Mynd: EPA
Yves Bissouma miðjumaður Brighton var orðaður við nokkur stórlið í sumar.

Það er ekkert óðlilegt þar sem, að hans eigin sögn, er hann besti miðjumaður úrvalsdeildarinnar.

Brighton hefur byrjað leiktíðina af krafti en liðið er í 4. sæti með 12 stig ef eftir 5 leiki. Bissouma tjáði sig um áhugann á honum í sumar, þar segir hann m.a. að hann vilji spila í Meistaradeildinni.

„Ég fór ekki í sumar, kannski af því þetta var ekki minn tími til að fara. Ég er ánægður hjá Brighton, ég nýt þess að spila fótbolta," sagði Bissouma.

„Ég er með sama draum og allir leikmenn, ég vil spila í Meistaradeildinni, ég vil verða meistari."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner