Gary Lineker, þáttastjórnandi Match of the Day, skilur ekkert í þeirri ákvörðun hjá David Moyes að láta Mark Noble koma inn á og fara beint á vítapunktinn.
Manchester United vann dramatískan sigur á West Ham í gær þar sem Mark Noble klúðraði víti í uppbótartíma fyrir heimamenn. Spyrnan var ekki alslæm en De Gea varði frábærlega.
Lineker var hins vegar ekki hrifinn af þessari ákvörðun hjá Moyes og segir hana óskiljanlega.
„Ég mun aldrei skilja þetta ákvörðun. Að setja inn leikmann, þó hann sé hokinn af reynslu og góður á punktinum eins og Noble, einungis til að taka víti er fáránlegt. Sama og hjá Englandi á EM."
Síðustu mínútur leiksins voru dramatískar. Jesse Lingard kom United yfir og stuttu síðar vildi Cristiano Ronaldo fá vítaspyrnu en ekkert var dæmt. Í kjölfarið fékk West Ham vítaspyrnu en De Gea bjargaði deginum fyrir gestina.
Athugasemdir