Fotbolti.net
20.09.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Tæpur Alvarez verður með í Madrídarslagnum

Tæpur Alvarez verður með í Madrídarslagnum
Canon

Mynd: EPA

Argentínski framherjinn Julián Alvarez hefur ekki átt góða byrjun á nýju tímabili. Hann vildi skipta yfir til Barcelona í sumar en fékk ekki ósk sína uppfyllta.
Tekur upp hanskann fyrir Alvarez - „Við erum allir orðnir dauðþreyttir á þessu“
TENGT EFNI

Tekur upp hanskann fyrir Alvarez - „Við erum allir orðnir dauðþreyttir á þessu“

Hann missti af stórum hluta undirbúningstímabilsins og kom við sögu inn af bekknum í tveimur deildarleikjum með Atlético Madrid áður en hann var í byrjunarliðinu á útivelli gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu.

Hann átti fínan leik á Anfield og lagði upp í 2-1 tapi en hefur verið meiddur síðan. Hann er tæpur fyrir Madrídarslaginn eftirvænta en Diego Simeone þjálfari staðfestir að hann mun koma við sögu í leiknum.

„Julián verður með okkur í grannaslagnum en ég veit ekki ennþá hvort hann byrjar inná eða á bekknum," sagði Simeone á fréttamannafundi í gær.

Real Madrid, Barcelona, PSG og Arsenal, fjögur af allra sterkustu félagsliðum heims, eru meðal þeirra sem vildu fá Alvarez í sínar raðir í sumar.

Evrópa í dag - Slegist um Madríd og PSG þarf sigur í fjandslag
TENGT EFNI

Evrópa í dag - Slegist um Madríd og PSG þarf sigur í fjandslag

Tæpur Alvarez verður með í Madrídarslagnum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.