Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 20. október 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Erfitt fyrir Liverpool að finna nýjan varnarmann í janúar
Liverpool gæti reynt að kaupa nýjan varnarmann í félagaskiptaglugganum í janúar eftir að ljóst varð að Virgil van Dijk spilar tæplega meira á þessu tímabili. Það gæti hins vegar reynst erfitt fyrir Liverpool að finna rétta manninn í janúar.

„Ég held að Klopp geti ekki farið í gegnum tímabilið í heild sinni án þess að kaupa auka varnarmann," sagði Orri Freyr Rúnarsson í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolti.net í dag.

„Þetta er samt erfitt því það er skortur á góðum hafsentum til að kaupa. Ef þú horfir á efstu liðin á Englandi. Arsenal hefði örugglega viljað sterkari og reyndari hafsent en Gabriel þó að að séu ágætis kaup. Chelsea endaði á að fá Thiago Silva sem var örugglega ekki efstur á blaði hjá þeim."

„Manchester United tók engan. Manchester City var líka í ströggli. Þeir tóku Nathan Ake í byrjun og hann var örugglega ekki hugsaður sem fyrsta val. Síðan tóku þeir Ruben Dias sem eru fín kaup en hann er ekki einn af bestu varnarmönnum í heiminum. Öll þessi topplið hafa verði á höttunum á eftir góðum varnarmanni sem gæti farið beint inn í byrjunarliðið en það eru fáir á lausu."


Hér að neðan má hlusta á umræðuna en þar var nánar rætt um meiðsli Van Dijk.
Enski boltinn - Ótrúleg úrslit og hrikalegar fréttir
Athugasemdir
banner
banner