Aguero spilar
David Silva, Samir Nasri, Wilfried Bony og Vincent Kompany verða ekki með Manchester City gegn Liverpool á morgun.
Leikmennirnir fjórir hafa verið að glíma við meiðsli og verða ekki með. Silva hafði helst átt möguleika í að verða klár en svo er ekki.
„Silva er ennþá með smá verk í ökklanum og það er áhætta fyrir hann að spila," sagði Manuel Pellegrini stjóri Manchester City á fréttamannafundi í dag.

Góðu fréttirnar fyrir Manchester City er hins vegar þær að Sergio Aguero er klár í slaginn á nýjan leik.
Argentínumaðurinn hefur verið frá keppni undanfarnar vikur vegna meiðsla aftan í læri en hann verður með í leiknum klukkan 17:30 á morgun.
Athugasemdir