Dele Alli, miðjumaður Tottenham Hotspur, þakkar Mauricio Pochettino fyrir samstarfið á Twitter en Pochettino var látinn taka poka sinn í gær.
Pochettino tók við Tottenham árið 2014 og hefur gert magnaða hluti með liðið en hann kom liðinu í úrslit Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili og það án þess að styrkja hópinn í eitt og hálft ár.
Hann var látinn fara eftir slakan árangur í byrjun leiktíðar en Jose Mourinho mun að öllum líkindum taka við liðinu.
Pochettino fékk Alli frá MK Dons og gaf honum tækifærið hjá Tottenham.
„Ég get ekki þakkað þessum manni nógu mikið fyrir. Hann kenndi mér svo margt og ég er þakklátur fyrir allt sem hann gerði fyrir mig. Gangi þér vel og vonandi sé ég þig aftur, vinur," sagði Alli.
I can’t thank this man enough. He’s taught me so much and I’m so grateful for everything he’s done for me. Good luck and hope to see you again my friend. pic.twitter.com/dUO6AJlMxR
— Dele (@dele_official) November 19, 2019
Athugasemdir