Fotbolti.net
20.11.19 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Villa: Kane er besti framherji í heimi

Villa: Kane er besti framherji í heimi
Canon

Mynd: Getty Images

David Villa, fyrrum framherji spænska landsliðsins, segir að Harry Kane sé besti framherji í heimi í dag.

Kane hefur raðað inn mörkum með Tottenham og enska landsliðinu undanfarin ár.

Samtals hefur Kane skorað 32 mörk í 45 leikjum með enska landsliðinu síðan hann spilaði sinn fyrsta leik árið 2015.
„Hann er besti framherjinn, nían, í fótboltanum í augnablikinu," sagði Villa.

„Hann er frábær í nánast öllu sem hann geir. Hann er klárlega líklegur til að taka gullskóinn á EM 2020."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.