Fotbolti.net
20.11.21 - 15:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Alex Freyr genginn til liðs við ÍBV (Staðfest)

Alex Freyr genginn til liðs við ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn eru byrjaðir að styrkja sig fyrir átökin í efstu deild á næstu leiktíð. Alex Freyr Hilmarsson er genginn í raðir ÍBV en þetta kemur fram á <a href="https://ibvsport.is/read/2021-11-20/alex-freyr-til-eyja" target="_blank">heimasíðu ÍBV.</a>

Hann semur við ÍBV til þriggja ára.
Alex Freyr, sem er 28 ára gamall, spilaði með Kórdrengjum á láni á síðustu leiktíð. Hann skoraði tvö mörk í níu leikjum í Lengjudeldinni á síðasta tímabili.

Alex er uppalinn hjá Sindra, en hann lék með Grindavík og Víkingi Reykjavík áður en hann fór yfir til KR árið 2019.

Hann hefur spilað 295 leiki í Meistaraflokki og skorað í þeim 60 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.