Fotbolti.net
21.01.21 - 21:54
Ívan Guðjón Baldursson

England: Burnley sótti þrjú stig á Anfield

England: Burnley sótti þrjú stig á Anfield
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool 0 - 1 Burnley
0-1 Ashley Barnes ('83, víti)
Englandsmeistarar Liverpool tóku á móti Burnley í áhugaverðum slag í ensku úrvalsdeildinni.

Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið sem eru í hörkubaráttu á sitthvorum enda töflunnar.

Liverpool stjórnaði leiknum, hélt boltanum mikið og átti margar marktilraunir sem hæfðu þó sjaldnast rammann.

Varnarmenn Burnley voru duglegir að henda sér fyrir skot og var lítið um dauðafæri. Divock Origi fékk besta færi heimamanna á 42. mínútu þegar hann slapp í gegn eftir varnarmistök Ben Mee en skaut í slána úr algjöru dauðafæri.

Liverpool hélt áfram að stjórna gangi mála í síðari hálfleik en fékk ekki mikið af dauðafærum. Gestirnir voru skeinuhættir og þurfti Alisson Becker að verja meistaralega frá Ashley Barnes til að halda stöðunni markalausri.

Mohamed Salah, Roberto Firmino og Jóhanni Berg Guðmundssyni var skipt inn til að hafa áhrif á leikinn og kom næsta mark á lokakaflanum. Alisson braut þá á Barnes innan vítateigs og steig sóknarmaðurinn stóri sjálfur á vítapunktinn og skoraði af miklu öryggi.

Liverpool hélt áfram að setja þunga pressu á andstæðingana en varnarleikur Burnley var til fyrirmyndar þar sem menn voru hvergi smeykir við að henda sér fyrir hvert skotið fætur öðru.

Lærisveinar Sean Dyche héldu út uppbótartíma og skópu frábæran sigur á Englandsmeisturunum. Burnley er sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið eftir sigurinn. Liverpool er aðeins með þrjú stig úr síðustu fimm leikjum og situr í fjórða sæti, sex stigum eftir toppliði Manchester United.

Það tekur tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.