Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. janúar 2022 09:47
Elvar Geir Magnússon
Aubameyang við hestaheilsu
Pierre-Emerick Aubameyang.
Pierre-Emerick Aubameyang.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Pierre-Emerick Aubameyang, leikmaður Arsenal, segir á Instagram að hann sé fullkomlega heilsuhraustur en hann mætti snemma til baka úr Afríkukeppninni.

Eftir að hann smitaðist af Covid fyrir mótið fundu læknar hjartavandamál hjá honum og hann fór til London í frekari skoðun.

„Ég er mjög ánægður með að geta tilkynnt það að hjartað í mér er í fínu lagi og ég er algjörlega heilsuhraustur. Kann að meta skilaboðin sem ég hef fengið síðustu daga," skrifaði þessi landsliðsmaður Gabon á Instagram og birti mynd af sér í líkamsræktarsal.

Aubameyang hefur ekki spilað fyrir Arsenal síðan 6. desember en hann var sviptur fyrirliðabandi félagsins eftir agabrot.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var spurður að því í vikunni hvort leikmaðurinn myndi spila aftur fyrir Arsenal?

„Hann smitaðist af Covid og svo ákvað landsliðið að hann færi aftur til okkar í skoðun. Við þurfum að vera fullvissir um að heilsa leikmannsins sé algjörlega í lagi og svo sjáum við hvað gerist," sagði Arteta.


Athugasemdir
banner
banner