Napoli reynir aftur við Garnacho - Arsenal ekki að ná að semja við Sporting um Gyökeres - Kudus í læknisskoðun hjá Spurs
   fös 21. janúar 2022 10:19
Elvar Geir Magnússon
Mangala til Saint-Etienne (Staðfest)
Franska félagið Saint-Etienne hefur samið við franska varnarmanninn Eliaquim Mangala og gert við hann sex mánaða samning.

Mangala spilaði síðast fyrir spænska félagið Valencia en hefur verið án félags síðan samningur hans rann út síðasta sumar.

Þessi þrítugi leikmaður hóf sinn feril hjá Standard Liege í Belgíu og spilaði svo fyrir Porto og Manchester City. Hann hefur spilað átta landsleiki fyrir Frakkand og var í leikmannahópnum á HM 2014 og EM 2016.

Saint-Etienne er á botni frönsku úrvalsdeildarinnar með aðeins tvo sigra og tólf stig eftir tuttugu leiki.
Athugasemdir
banner
banner