Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 21. janúar 2022 18:58
Victor Pálsson
Sjáðu frábært fyrsta mark Torres
Mynd: EPA
Ferran Torres, leikmaður Barcelona, skoraði í gær sitt fyrsta mark fyrir félagið en hann kom í byrjun mánaðar frá Manchester City.

Barcelona er úr leik í Konungsbikarnum eftir framlengdan leik en Athletic Bilbao vann viðureignina 3-2.

Það var Torres sem skoraði fyrsta mark Barcelona í leiknum en hann jafnaði þá metin á 20. mínútu fyrri hálfleiks.

Spánverjinn mun væntanlega ekki gleyma þessu marki en hann skorðai með mjög góðu skoti innan teigs.

Iker Muniain reyndist munurinn á liðunum í gærkvöldi en hann skoraði tvívegis til að tryggja Athletic áfram.

Mark Torres má sjá hér.


Athugasemdir
banner
banner