Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. janúar 2023 13:43
Aksentije Milisic
Magnús Örn tekur við U15 landsliðinu af Ólafi Inga
Magnús.
Magnús.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Örn Helgason hefur tekið við U15 ára landsliði kvenna af Ólafi Inga Skúlasyni en þessu greindi KSÍ frá í gær.

Ólafur Ingi tók við liðinu í janúar mánuði árið 2021


Magnús mun áfram hafa umsjón með hæfileikamótun kvenna og þá hefur Margrét Magnúsdóttir tekið við þjálfun U16 ára liðs kvenna.

Magnús mun verða með Margréti í U16 liðinu fram í apríl en þá fer fram UEFA Development mót.

Þau bæði munu síðan klára leiki með U17 og U19 í vor en þau landslið eiga þá leiki í milliriðlum. Eftir það verða fleiri breytingar sem munu koma í ljós seinna meir hjá KSÍ.


Athugasemdir
banner
banner
banner