21.03.21 - 21:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jordan Brown lendir á Íslandi í vikunni

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enski sóknarmaðurinn Jordan Brown er að koma til Fylkis en þetta staðfesti Atli Sveinn Þórarinsson, þjálfari liðsins, í samtali við Fótbolta.net í gær.
Áður <a href="https://fotbolti.net/news/09-03-2021/fylkir-ad-fa-enskan-soknarmann" target="_blank">hafði verið greint frá því í hlaðvarpsþættinum Dr Football</a> að Brown væri á leið í Árbæinn.

„Við erum að fá Jordan Brown. Hann lendir einhvern tímann í vikunni," sagði Atli og bætti við að hann væri annars mjög sáttur með leikmannahópinn.
Brown er 24 ára gamall en hann hefur í vetur spilað með Aalen í fjórðu efstu deild í Þýskalandi. Brown spilaði bæði með yngri liðum Arsenal og West Ham á sínum tíma.
Árið 2015 spilaði Brown með West Ham í Evrópudeildinni en hann var síðar lánaður til Chelmsford City í ensku utandeildinni.
Brown spilaði með varalið Hannover og um skamman tíma með Znojmo í B-deildinni í Tékklandi áður en hann fór til Cavalry í Kanada árið 2019. Þar spilaði hann í tvö ár í úrvalsdeildinni í Kanada og skoraði sjö mörk.