Baleba fer ekki til Man Utd í sumar - Newcastle enn í framherjaleit - Ederson til Galatasaray?
banner
laugardagur 16. ágúst
Mjólkurbikar kvenna
fimmtudagur 14. ágúst
Besta-deild kvenna
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
mánudagur 11. ágúst
Besta-deild karla
laugardagur 9. ágúst
Lengjudeild karla
Besta-deild kvenna
miðvikudagur 6. ágúst
Besta-deild karla
mánudagur 4. ágúst
Besta-deild kvenna
laugardagur 2. ágúst
miðvikudagur 30. júlí
Lengjudeild karla
Lengjudeild kvenna
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Lengjudeild karla
mánudagur 28. júlí
Besta-deild karla
laugardagur 26. júlí
2. deild karla
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
fimmtudagur 24. júlí
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
Besta-deild kvenna
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
miðvikudagur 23. júlí
þriðjudagur 22. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
sunnudagur 20. júlí
Besta-deild karla
laugardagur 16. ágúst
Championship
Blackburn - Birmingham - 14:00
Portsmouth 1 - 2 Norwich
0 2 Josh Sargent ('14)
Mirko Topic - Norwich ('25, gult spjald)
Jose Cordoba - Norwich ('37, gult spjald)
Regan Poole - Portsmouth ('58, gult spjald)
0 2 Colby Bishop ('80, Misnotað víti)
1 2 Adrian Segecic ('84)
John Swift - Portsmouth ('90, gult spjald)
Connor Ogilvie - Portsmouth ('90, gult spjald)
Harry Darling - Norwich ('90, gult spjald)
Watford - QPR - 14:00
Swansea - Sheffield Utd - 14:00
Millwall - Middlesbrough - 14:00
Wrexham 2 - 3 West Brom
Lewis Brunt - Wrexham ('27, gult spjald)
1 1 Lewis O'Brien ('42)
1 2 Jed Wallace ('74)
1 3 Isaac Price ('81)
Toby Samuel Smith - Wrexham ('90, gult spjald)
2 3 Toby Samuel Smith ('90)
Sheff Wed - Stoke City - 14:00
Derby County 3 - 5 Coventry
1 1 Callum Elder ('12)
1 2 Haji Wright ('25, víti)
Matt Clarke - Derby County ('45, gult spjald)
2 2 Carlton Morris ('45, víti)
Brandon Thomas-Asante - Coventry ('45, gult spjald)
3 2 Ebou Adams ('50)
Matt Grimes - Coventry ('55, gult spjald)
Ryan Nyambe - Derby County ('62, gult spjald)
3 3 Brandon Thomas-Asante ('72)
3 4 Ephron Mason-Clark ('75)
Haji Wright - Coventry ('76, gult spjald)
3 5 Victor Torp ('79)
Milan van Ewijk - Coventry ('83, gult spjald)
Preston NE - Leicester - 14:00
Bristol City - Charlton Athletic - 14:00
Úrvalsdeildin
Aston Villa 0 - 0 Newcastle
Boubacar Kamara - Aston Villa ('58, gult spjald)
Ezri Konsa - Aston Villa ('66, rautt spjald)
Brighton - Fulham - 14:00
Sunderland - West Ham - 14:00
Tottenham - Burnley - 14:00
Wolves - Man City - 16:30
Bikarkeppni
BFC Dynamo 1 - 2 Bochum
Willi Reincke - BFC Dynamo ('30, gult spjald)
Can Karatas - BFC Dynamo ('33, gult spjald)
Mats Pannewig - Bochum ('39, gult spjald)
1 0 Jan-Rafael Shcherbakovski ('46)
Larry Oellers - BFC Dynamo ('81, rautt spjald)
1 1 Noah Loosli ('86)
Tobias Gunte - BFC Dynamo ('94, gult spjald)
1 1 Matus Bero ('94, Misnotað víti)
Cajetan Lenz - Bochum ('95, gult spjald)
Ivan Knezevic - BFC Dynamo ('96, gult spjald)
Rufat Dadashov - BFC Dynamo ('104, rautt spjald)
1 2 ('106)
Pirmasens 1 - 2 Hamburger
1 0 Yannick Griess ('53)
Jordan Torunarigha - Hamburger ('63, gult spjald)
Kevin Buchler - Pirmasens ('71, gult spjald)
Manuel Grunnagel - Pirmasens ('86, gult spjald)
1 1 Gui Ramos ('90)
Miguel Deho - Pirmasens ('98, gult spjald)
Nico Wiltz - Pirmasens ('99, gult spjald)
1 2 Ransford Konigsdorffer ('100)
Michael Muller - Pirmasens ('111, gult spjald)
Bahlinger SC 0 - 0 Heidenheim
Hansa 0 - 0 Hoffenheim
Hemelingen - Wolfsburg - 13:30
Illertissen - Nurnberg - 13:30
Eintracht Norderstedt 0 - 0 St. Pauli
Sandhausen 0 - 0 RB Leipzig
Energie - Hannover - 16:00
Sportfreunde Lotte - Freiburg - 16:00
Lubeck - Darmstadt - 16:00
WORLD: International Friendlies
Lebanon U-23 - Syria U-23 - 14:00
Hungary U-17 - Ireland U-17 - 16:00
Iceland U-17 - Turkey U-17 - 16:00
Bikarkeppni
Venezia - Mantova - 16:00
Como - Sudtirol - 16:30
Cremonese - Palermo - 19:15
Cagliari - Virtus Entella - 18:45
Toppserien - Women
SK Brann W - Valerenga W - 14:00
Lyn W 2 - 1 Kolbotn W
Rosenborg W 0 - 0 Honefoss W
- Rosenborg W ('72, gult spjald)
- Rosenborg W ('75, gult spjald)
Roa W 1 - 1 Lillestrom W
Úrvalsdeildin
Spartak - Zenit - 14:30
Akhmat Groznyi - Kr. Sovetov - 17:30
Baltica 1 - 0 Lokomotiv
Vladislav Saus - Baltica ('32, gult spjald)
Nikolai Titkov - Baltica ('57, gult spjald)
Maksim Petrov - Baltica ('65, gult spjald)
La Liga
Alaves - Levante - 19:30
Mallorca - Barcelona - 17:30
Valencia - Real Sociedad - 19:30
Damallsvenskan - Women
Alingsas W 1 - 2 Brommapojkarna W
Kristianstads W 0 - 0 Rosengard W
0 2 ('21)
0 3 ('36)
0 4 ('69)
0 5 ('90)
Elitettan - Women
Ekkert mark hefur verið skorað
Uppsala W 0 - 3 KIF Orebro W
Mallbacken W 0 - 1 Bollstanas W
Orebro SK W 1 - 2 Trelleborg W
mið 21.apr 2021 16:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 7. sæti: Víkingur

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Víkingur muni enda í 7. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Víkingar höfnuðu í 10. sæti í fyrra.

Kári Árnason er lykilmaður hjá Víkingum.
Kári Árnason er lykilmaður hjá Víkingum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Júlíus Magnússon.
Miðjumaðurinn Júlíus Magnússon.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Helgi Guðjónsson.
Sóknarmaðurinn Helgi Guðjónsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristall Máni Ingason, Ungstirnin mæla með því að fólk fylgist með.
Kristall Máni Ingason, Ungstirnin mæla með því að fólk fylgist með.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi Tómasson.
Logi Tómasson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimavöllur hamingjunnar.
Heimavöllur hamingjunnar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pablo Punyed er mættur í Víkingstreyjuna.
Pablo Punyed er mættur í Víkingstreyjuna.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Ingvar Jónsson.
Markvörðurinn Ingvar Jónsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. Víkingur 57 stig
8. Fylkir 56 stig
9. HK 40 stig
10. Keflavík 28 stig
11. ÍA 23 stig
12. Leiknir 14 stig

Um liðið: Eftir bikarmeistaratitilinn 2019 (eru því enn ríkjandi bikarmeistarar!) voru gríðarlegar væntingar til síðasta tímabils í Fossvoginum. En sumarið endaði í miklum vonbrigðum á stöngin-út tímabili. Leikstíllinn sem hafði gefið bikar á fyrsta tímabili skilaði ekki mörgum stigum og liðið hafnaði í 10. sæti. Víkingar eru ekki eins yfirlýsingaglaðir og fyrir ári síðan en metnaðurinn er mikill.



Þjálfari - Arnar Gunnlaugsson: Hefur litað deildina á stórskemmtilegan hátt, hreinskilinn og skemmtilegur í viðtölum og vill sjá áhorfendavænan fótbolta hjá sínu liði. Arnar er óhræddur við að viðurkenna eigin mistök og fer ekki leynt með að hann stefni hátt í þjálfarabransanum. Gerði á dögunum nýjan þriggja ára óuppsegjanlegan samning við Víkinga

Styrkleikar: Víkingar vilja spila góðan fótbolta, halda boltanum vel og eru óhræddir. Þeir eru með unga leikmenn í góðu líkamlegu standi sem eru allir með í stefnu þjálfarans. Ofan á það má svo finna menn með mikla reynslu. Þar á meðal er Kári Árnason sem er sannur sigurvegari og rífur liðið áfram. Þegar Víkingur er í gírnum er erfitt að eiga við liðið.

Veikleikar: Úrslitin hafa ekki alveg fylgt tölfræðinni í Víkinni. Markvarslan var vonbrigði í fyrra og Ingvar Jónsson þarf að stíga betur upp. Liðið þarf að verjast betur í föstum leikatriðum og þá er gæti breiddin verið meiri. Liðið hefur misst öfluga leikmenn frá síðasta tímabili og mikið talað um hversu erfitt hefur reynst að fylla skarð Óttars Magnúsar Karlssonar.

Lykilmenn: Kári Árnason og Pablo Punyed. Kári er orðinn 38 ára en gefur ekkert eftir eins og hann hefur sýnt í landsleikjum með Íslandi. Miðjumanninn Pablo Punyed þarf heldur ekki að kynna fyrir íslensku fótboltaáhugafólki. Hann átti flott tímabil fyrir KR í fyrra og er ætlað stórt hlutverk í Víkinni.

Fantabrögð mæla með í Draumaliðsdeild Eyjabita:
Erfitt að lesa Víkingana þegar kemur að Fantasy enda hafa væntingar verið mun meiri en stig, hvort sem rætt er um stig í deild eða stig í Fantasy. Það er einhver vinnuregla í Víkinni að enginn skori meira en 2 mörk á tímabili nema hann heiti Óttar. En Fantabræður trúa því að Helgi Tuðjóns muni breyta því og hala inn stigum í byrjun móts.
Smelltu hér til að fara í Draumaliðsdeild Eyjabita

Hlaðvarpsþátturinn Ungstirnin mælir með:
Kristall Máni Ingason gæti verið svo kallaður leikbreytir fyrir Víkinga í sumar. Leikmaður sem er uppalinn í Fjölni, fór til FCK í 2 ár og kom til Víkinga á seinasta ári. Arnar Gunnlaugsson ætlaði að breyta Kristal í djúpan miðjumann sem vægast sagt misheppnaðist en Kristall lék 15 leiki með Víkingum í fyrra og skoraði aðeins eitt mark. Kristall hefur nú verið að spila á vinstri kantinum á undirbúningstímabilinu og það virðist vera virka, 6 leikir og 5 mörk í Lengjubikarnum og það virðist vera að Arnar Gunnlaugs gæti verið búinn að finna rétta stöðu fyrir Kristal. Hann gæti komið mörgum á óvart í sumar.

Spurningarnar: Hvernig svara Víkingar eftir síðasta tímabil? Mun Helgi Guðjónsson taka markaskóna með sér úr undirbúningstímabilinu og inn í mót? Ná Víkingar að verja bikarmeistaratitilinn?

Völlurinn: Það jafnast fátt á við leikdagsupplifun á heimavelli hamingjunnar þegar sólin skín. Skemmtilegt vallarstæði og skemmtanagildið inni á vellinum er venjulega hátt.

„Allir Víkingar vilja sanna sig eftir vonbrigði í fyrra"


Aðstoðarþjálfarinn segir - Einar Guðnason
„Spáin kemur kannski ekki á óvart þar sem við höfum misst nokkra lykilmenn og svo er alltaf smá óvissa með líkamlega heilsu gömlu mannanna í öllu þessu stop/start ástandi sem hefur verið í vetur. Við ætlum klárlega að afsanna þessa spá ykkar í það minnsta. Það er mikil spenna fyrir sumrinu. Allir Víkingar vilja sanna sig eftir vonbrigði í fyrra og fólkið okkar getur ekki beðið eftir því að komast á völlinn í Víkinni, horfa á flottan fótbolta og gæða sér á Hjaltested borgurunum."

Komnir
Axel Freyr Harðarson frá Gróttu
Karl Friðleifur Gunnarsson á láni frá Breiðabliki
Logi Tómasson frá FH (Var á láni)
Pablo Punyed frá KR

Farnir
Ágúst Eðvald Hlynsson til Horsens
Davíð Örn Atlason í Breiðablik
Dofri Snorrason í Fjölni
Óttar Magnús Karlsson til Venezia

Fyrstu fimm leikir Víkings:
2. maí Víkingur - Keflavík
8. maí ÍA - Víkingur
13. maí Stjarnan - Víkingur
16. maí Víkingur - Breiðablik
21. maí KA - Víkingur

Sjá einnig:
Hin hliðin - Halldór Þórðarson
Hin hliðin - Erlingur Agnarsson

Leikmenn Víkings:
1 - Ingvar Jónsson (m)
3 - Logi Tómasson
7 - Erlingur Agnarsson
8 - Sölvi Geir Ottesen
9 - Helgi Guðjónsson
10 - Pablo Punyed
11 - Adam Ægir Pálsson
12 - Halldór Smári Sigurðsson
13 - Viktor Örlygur Andrason
14 - Sigurður Steinar Björnsson
16 - Þórður Ingason (m)
17 - Atli Barkarson
19 - Axel Freyr Harðarson
20 - Júlíus Magnússon
21 - Kári Árnason
22 - Karl Friðleifur Gunnarsson
23 - Nikolaj Hansen
25 - Bjarki Björn Gunnarsson
26 - Jóhannes Dagur Geirdal
27 - Tómas Guðmundsson
28 - Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Magnús Már Einarsson, Sverrir Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir