Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 21. apríl 2021 06:00
Victor Pálsson
HK fær bandarískan framherja (Staðfest)
Mynd: HK
Danielle Marcano mun spila með liði HK í Lengjudeild kvenna á tímabilinu en þetta staðfesti félagið í gær.

er að ræða 24 ára gamlan sóknarmann sem lék síðast með háskólaliði Tennessee í Bandaríkjunum.

Í tilkynningu HK kemur fram að Danielle hafi verið markahæsti leikmaður Tennessee í úrslitakeppni NCAA árið 2018með sjö mörk.

Danielle hefur áður æft með unglingalandsliðum Bandaríkjanna bæði U17 og síðar U14.

„Danielle kemur inn í leikmannahóp HK með ákveðin gæði sem við höfum verið að leita eftir. Hún er hröð, sterk og klárar færin sín vel. Við erum spennt að fá hana til liðs við okkur og erum þess fullviss að hún muni gera okkar lið enn sterkara fyrir átök sumarsins," kemur fram í tilkynningu HK.

Danielle er framherji en hún getur einnig leyst aðrar stöður vallarins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner