Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 21. apríl 2021 20:06
Brynjar Ingi Erluson
Rússland: Lokomotiv í úrslit á kostnað CSKA
Arnór kom inná sem varamaður í leiknum
Arnór kom inná sem varamaður í leiknum
Mynd: Getty Images
CSKA Moskva mun ekki leika til úrslita í rússneska bikarnum eftir 3-0 tap gegn nágrönnum þeirra í Lokomotiv.

Salomon Rondon skoraði fyrir CSKA snemma leiks en VAR dæmdi markið af. Lokomotiv nýtti sér það og tókst að komast yfir aðeins nokkrum mínútum síðar.

Francois Kamano gerði markið áður en Fedor Smolov og Grzegorz Krychowiak bættu við tveimur til viðbótar.

Arnór Sigurðsson kom inná sem varamaður á 58. mínútu leiksins.

3-0 sigur hjá Lokomotiv sem er komið í úrslit bikarsins og mætir þar Krylya þann 12. maí næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner