Það er mikill áhugi á hinum 18 ára gamla Zadok Yohanna, leikmanni sænska liðsins AIK.
Florian Plettenberg hjá Sky Sports í Þýskalandi greinir frá því að Dortmund, Leverkusen og Leipzig hafa öll áhuga á honum.
Florian Plettenberg hjá Sky Sports í Þýskalandi greinir frá því að Dortmund, Leverkusen og Leipzig hafa öll áhuga á honum.
Yohanna er kantmaður en hann hefur farið gríðarlega vel af stað með AIK á þessu tímabili. Hann hefur komið að tveimur mörkum í fyrstu þremur leikjunum í deildinni og þá hefur hann skorað þrjú mörk í fjórum leikjum í bikarnum.
Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við sænska félagið í fyrra.



