Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 21. maí 2021 19:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Douglas Costa til Gremio (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Brasilíski kantmaðurinn Douglas Costa er genginn í raðir brasilíska félagsins Gremio á láni frá Juventus.

Costa, sem er 30 ára gamall, hefur verið á láni hjá Bayern München frá Juventus, en lánssamningurinn rennur út í sumar.

Brasilíumaðurinn á aðeins eitt ár eftir af samningnum á Ítalíu en Juventus hefur ekki not fyrir leikmanninn.

Costa hefur verið í viðræðum við Gremio síðustu vikur en leikmaðurinn er með tilfinningaleg tengsl við félagið enda hóf hann atvinnumannaferilinn þar áður en hann gekk til liðs við Shakhtar Donetsk árið 2010.

Costa vann 21 titil í Evrópu en eygir nú þá von að vinna titil í heimalandinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner