Fotbolti.net
21.05.21 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Spánn um helgina - Atlético Madríd getur orðið meistari

Luis Suarez getur orðið Spánarmeistari með Atlético en hann hefur verið frábær með liðinu frá því hann kom frá Barcelona

Luis Suarez getur orðið Spánarmeistari með Atlético en hann hefur verið frábær með liðinu frá því hann kom frá Barcelona

Canon

Mynd: Getty Images

Lokaumferðin í spænska boltanum fer fram þessa helgina og er Atlético Madríd í bílstjórasætinu um titilinn en liðið mætir Real Valladolid á morgun.
Stjórnarmenn spænsku deildarinnar ákváðu að raða leikjunum í lokaumferðinni niður á þrjá daga.

Í kvöld mætast Levante og Cadiz en liðin eru bæði búin að tryggja áframhaldandi þátttöku í deildinni og mikilvægi leiksins því ekki eins mikið og í laugardagsleikjunum.

Klukkan 16:00 á morgun hefst fjörið. Real Betis og Real Sociedad eru í baráttu um Evrópudeildarsæti. Sociedad er í 5. sæti sem stendur með 59 stig en Betis með 58 stig í sjötta sæti. Betis heimsækir Celta á meðan Sociedad spilar við Osasuna.

Titilbaráttan er þá rafmögnuð. Atlético Madríd er í toppsætinu með 83 stig, tveimur stigum á undan Real Madrid. Stig yrði ekki nóg fyrir Atlético ef Real Madrid vinnur sinn leik gegn Villarreal þar sem innanbyrðis viðureignir gilda.

Það sem flækir málin fyrir Atlético er að Valladolid er í fallsæti en liðið á möguleika að halda sér uppi með sigri. Það er því mikið undir í Madríd.

Hægt er að sjá leiki helgarinnar hér fyrir neðan.

Föstudagur:
19:00 Levante - Cadiz

Laugardagur:
16:00 Celta - Betis
16:00 Elche - Athletic
16:00 Valladolid - Atletico Madrid
16:00 Real Madrid - Villarreal
16:00 Osasuna - Real Sociedad
16:00 Huesca - Valencia
16:00 Eibar - Barcelona

Sunnudagur:
16:30 Granada CF - Getafe
19:00 Sevilla - Alaves

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona9+3027
2Atletico Madrid9+1122
3Real Madrid9+1421
4Betis9+219
5Real Sociedad9016
6Sevilla9-214
7Alaves10+312
8Celta9+311
9Deportivo9+111
10Osasuna9-811
11Levante9-210
12Vallecano9-510
13Villarreal909
14Athletic8-19
15Getafe9-69
16Espanyol9-18
17Elche10-68
18Racing Santander9-128
19Valencia9-96
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.