Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 21. júní 2022 15:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Cucho Hernandez til Columbus Crew (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Cucho Hernandez hefur yfirgefið Watford eftir fimm ár sem leikmaður félagsins.

Cucho er 23 ára og hefur skrifað undir samning við Columbus Crew sem spilar í bandarísku MLS-deildinni. Kaupverðið er óuppgefið en talið er að bandaríska félagið sé að borga metupphæð fyrir leikmanninn.

Hann er kólumbískur landsliðsmaður sem kom til Watford frá Granada árið 2017. Hann fór til þriggja félaga á láni frá Watford á sínum. Hann var tvö tímabil hjá Huesca og sitthvort tímabilið hjá Mallorca og Getafe.

Í vetur náði hann að vinna sér sæti í liðinu hjá Watford og skoraði fimm mörk í 28 leikjum í öllum keppnum. Watford féll úr úrvalsdeildinni og verður í Championship á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner