Todor: Þær geta verið stoltar

Todor Hristov, þjálfari ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Todor Hristov, þjálfari ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Erfitt að kyngja þessu, en svona er þetta í fótbolta,'' segir Todor Hristov, þjálfari ÍBV, eftir 2-1 tap gegn FH í 9. umferð Bestu deild kvenna í dag.
„Mér fannst þetta flottur leikur hjá okkur. Margt gott sem við náðum að bæta eftir bikarleiknum á móti þeim. Þetta var svekkjandi tap.''
ÍBV spilaði gegn FH í bikarnum fyrir minna en viku síðan. Todor var spurður út í hvernig honum fannst að spila aftur gegn FH á svona stuttu tímbili.
„Það er erfitt og mér finnst sem þjálfari á sama tíma skemmtilegt og góð áskorun. Það var pæling um hvað við ættum að breyta og hvað við ættum að gera betur,''
„Það er ekki skrítið að leikmenn kannski missa smá sjálfstraust, en við erum að vinna í því á æfingum. Ég sagði við þær strax inn í klefa eftir leikinn að þær geta verið stoltar af sér,''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.


