Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 21. júlí 2021 20:22
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikir: Alfreð tapaði gegn PSG - Barca og Inter settu 4
Mynd: Getty Images
Mynd: EPA
Það fóru nokkrir æfingaleikir fram í dag og í kvöld þar sem undirbúningstímabilið er í fullu fjöri.

Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg sem tapaði gegn franska stórveldinu Paris Saint-Germain í dag.

Julian Draxler kom PSG yfir í síðari hálfleik, skömmu áður en Alfreði var skipt útaf. Augsburg tókst að jafna á næstu mínútum og leit sigurmarkið ekki ljós fyrr en undir lokin. Jeffrey Gouweleeuw varð þá fyrir því óláni að setja knöttinn í eigið net og lokatölur 2-1 fyrir PSG.

PSG 2 - 1 Augsburg
1-0 Julian Draxler ('62)
1-1 Florian Niederlechner ('66)
2-1 Jeffrey Gouweleeuw ('89, sjálfsmark)

Barcelona og Inter skoruðu þá fjögur mörk hvort í æfingaleikjum gegn neðrideildaliðum.

Barca lagði Gimnastic, sem missti mann af velli eftir 38 mínútur, þar sem albanski framherjinn Rey Manaj setti þrennu, á meðan Inter rúllaði yfir Pro Vercelli.

Hakan Calhanoglu og Marcelo Brozovic skoruðu fyrir Inter auk hins efnilega Samuele Mulattieri sem settu tvennu.

Roma lagði þá Triestina að velli. Nicola Zalewski skoraði eina mark leiksins.

Barcelona 4 - 0 Gimnastic
1-0 R. Manaj ('60)
2-0 A. Collado ('85)
3-0 R. Manaj ('86)
4-0 R. Manaj ('90, víti)

Inter 4 - 0 Pro Vercelli
Hakan Calhanoglu
Marcelo Brozovic
Samuele Mulattieri x2

Triestina 0 - 1 Roma
0-1 Nicola Zalewski ('49)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner