Fotbolti.net
21.08.16 - 20:02
Arnar Geir Halldórsson

Brynjar Skúla: Leikur sem fer í sögubækurnar

Auglýsing
Brynjar Skúlason

Brynjar Skúlason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Skúlason, þjálfari Huginn, var vonsvikinn eftir að hafa séð sína menn tapa 2-1 fyrir Þór í Inkasso-deildinni í dag.
„Þetta var leikur sem fer í sögubækurnar. Tvö rauð spjöld eftir 22 mínútur og einu marki undir þannig að þetta var ekki frábær leikur,\" segir Brynjar.

Leikmannahópur Huginsmanna er ekki ýkja stór en liðið á mikilvægan leik fyrir höndum í næstu umferð þegar þeir heimsækja Leikni F. en liðið verður án þriggja leikmanna vegna leikbanna.

„Við vorum með 15 menn á skýrslu í dag og ætli það verði ekki þrír í banni í næsta leik þannig að það verður eitthvað.\"

„Við erum búnir að fá tvo sénsa til að koma okkur úr fallsæti, bæði þegar við spilum á móti Fram og núna á móti Þór og í bæði skiptin klúðrum við því alveg hrikalega illa, erum bara lélegir og það veit ekki á gott,\"
segir Brynjar.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.