Lið vikunnar í enska - Þrír frá City og tveir frá Liverpool

Markvörður: Neil Etheridge (Cardiff) - Varði vítaspyrnu í blálokin gegn Newcastle og tryggði nýliðunum stig.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Shane Duffy (Brighton) - Skoraði í 3-2 sigri Brighton gegn Manchester United.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Hollenski varnarmaðurinn var lykilmaður þegar Liverpool sýndi að liðið getur líka unnið \"ljóta sigra\".

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: John Stones (Man City) - Steig ekki feilspor í 6-1 sigri þeirra ljósbláu gegn Huddersfield.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Benjamin Mendy (Man City) - Geggjaður leikmaður. Erfið meiðsli á síðasta tímabili hafa bara gert hann öflugri.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Marcos Alonso (Chelsea) - Hetja Chelsea í sigrinum gegn Arsenal.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Naby Keita (Liverpool) - Var líka í úrvalsliðinu eftir fyrstu umferðina.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Pascal Gross (Brighton) - Meðal bestu leikmanna á vellinum í sigrinum gegn United.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Gylfi Þór Sigurðsson (Everton) - Frábær frammistaða gegn Southampton skilaði Gylfa í lið helgarinnar hjá BBC. Hann fékk mikið lof frá Garth Crooks, sérfræðingi BBC.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Glenn Murray (Brighton) - Þessi 34 ára klóki sóknarmaður fór illa með varnarmenn Manchester United.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Sergio Aguero (Man City) - Það er búið að segja allt sem hægt er að segja um þennan snilling. Skoraði þrennu um liðna helgi.

Mynd: Getty Images






