Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 21. ágúst 2021 09:53
Brynjar Ingi Erluson
Milan fær Florenzi á láni frá Roma (Staðfest)
Alessandro Florenzi er mættur til Mílanó
Alessandro Florenzi er mættur til Mílanó
Mynd: Heimasíða Milan
Ítalska félagið AC Milan hefur gengið frá lánssamningi við ítalska hægri bakvörðinn Alessandro Florenzi en hann verður á láni frá Roma út þessa leiktíð.

Florenzi er þrítugur og hefur alla tíð verið samningsbundinn Roma en þetta er þriðja leiktíðin í röð sem hann er lánaður frá félaginu.

Hann var á láni hjá Valencia tímabilið 2019/2020 og spilaði þá með Paris Saint-Germain á síðustu leiktíð.

Florenzi mun spila með Milan á komandi tímabili en hann gerir lánssamning út leiktíðina.

Þetta staðfesti Milan í tilkynningu rétt í þessu.

Milan lenti í 2. sæti ítölsku deildarinnar á síðasta tímabili og mun spila í Meistaradeild Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner