Fotbolti.net
21.08.26 - 19:14
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deild kvenna: Þróttur vann í Eyjum

Besta deild kvenna: Þróttur vann í Eyjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
ÍBV 1 - 2 Þróttur R.
0-1 Björg Gunnlaugsdóttir ('21 )
0-2 Sæunn Björnsdóttir ('28 )
1-2 Milena Mihaela Patru ('80 )
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 Þróttur R.
ÍBV og Þróttur R. áttust við í fyrsta leik dagsins í Bestu deild kvenna og voru gestirnir sterkara liðið í fyrri hálfleik.

Björg Gunnlaugsdóttir skoraði fyrsta markið þegar hún fylgdi eftir með skoti af stuttu færi áður en Sæunn Björnsdóttir tvöfaldaði forystuna með marki beint úr hornspyrnu.

Heimakonur réðu ekki við góða pressu Þróttara og var staðan 0-2 í leikhlé. Það var mikið líf stærsta hluta seinni hálfleiks og fengu Eyjakonur góð færi til að minnka muninn áður en Milena Patru náði að setja boltann í netið eftir hornspyrnu á 80. mínútu.

Boltinn datt fyrir Milenu eftir klafs í teignum og kom hún boltanum yfir marklínuna.

Eyjakonum tókst ekki að skapa sér mikið á lokakaflanum. Olga Sevcova fékk þó gott færi sem hún fór illa með, svo lokatölur urðu 1-2.

Þróttur er með 21 stig eftir 16 umferðir, átta stigum fyrir ofan fallsvæðið og þremur stigum á eftir ÍBV.
Besta deild kvenna: Þróttur vann í Eyjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.