21.08.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bruno Guimaraes meiddur á læri

Mynd: Arsenal

Mynd: EPA

Mynd: Arsenal
Byrjunarliðin í opnunarleik nýs úrvalsdeildartímabils hafa verið tilkynnt og er Bruno Guimaraes, nýr leikmaður Arsenal, ekki partur af leikmannahópi Englandsmeistaranna gegn nýliðunum frá Coventry í kvöld.
Bruno var í byrjunarliði Arsenal sem vann Samfélagsskjöldinn gegn Manchester City um síðustu helgi en þurfti að fara meiddur af velli í leikhlé.
Hann er að glíma við vandamál í læri sem ætti þó ekki að vera alvarlegt. Þjálfarateymið er sannfært um að Bruno verði klár í slaginn fyrir næsta leik, sem er á útivelli gegn Aston Villa mánudaginn 31. ágúst.
Mikel Arteta þjálfari Arsenal gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu sem lagði Man City að velli um helgina. Declan Rice kemur inn fyrir Bruno á meðan Bukayo Saka tekur byrjunarliðssætið af Noni Madueke sem sest á bekkinn.

TENGT EFNI
Byrjunarlið Arsenal og Coventry: Martinelli ekki með

Mynd: EPA