21.08.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Vongóðir um að landa Marmoush

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tottenham Hotspur er í stórsókn á leikmannamarkaðinum og er félagið búið að ná samkomulagi við Manchester City um kaup á brasilíska kantmanninum Savinho.

TENGT EFNI
Tottenham í viðræðum við Man City um tvo leikmenn
Savinho er þó ekki eini leikmaður Man City sem Spurs vill krækja í, útaf því að félögin eru einnig í viðræðum um félagaskipti fyrir Omar Marmoush.
Þau félagaskipti gætu reynst flóknari þar sem City þarf að finna leikmann sem getur fyllt í skarðið áður en Marmoush verður seldur.
Talið er að Spurs greiði um 80 milljónir punda fyrir Savinho og er talið að City vilji fá svipaða upphæð fyrir Marmoush.
Félagið er einnig að vinna að samkomulagi við Liverpool fyrir hollenska kantmanninn Cody Gakpo. 70 milljónir gætu nægt, en Tottenham keypti einnig Sandro Tonali, Mateus Fernandes og Jan Paul van Hecke fyrr í sumar.
Takist félaginu að landa öllum þessum leikmönnum verður heildareyðsla sumarsins í kringum 450 milljónir. Tottenham er búið að selja leikmenn fyrir um 150 milljónir það sem af er sumars.
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem segir viðræður Spurs við City um Marmoush vera langt á veg komnar. Líklegt er að aðilar nái samkomulagi á næstu dögum.