Fotbolti.net
21.08.26 - 23:10
Ívan Guðjón Baldursson

Ödegaard æfði afgreiðsluna

Ödegaard æfði afgreiðsluna
Canon

Mynd: EPA

Martin Ödegaard fyrirliði Arsenal var skælbrosandi eftir 3-0 sigur gegn nýliðum Coventry City í fyrstu umferð nýs úrvalsdeildartímabils fyrr í kvöld.
England: Auðvelt fyrir Englandsmeistarana
TENGT EFNI

England: Auðvelt fyrir Englandsmeistarana

Ödegaard skoraði skemmtilegt heppnismark í sigrinum og er þar með búinn að jafna markaskorun sína frá síðustu leiktíð, þegar honum tókst aðeins að skora eitt mark í 24 deildarleikjum.

Norðmaðurinn skoraði einnig í sannfærandi sigri Arsenal gegn Manchester City í úrslitaleiknum um Samfélagsskjöldinn um síðustu helgi.

„Þetta er fullkomin byrjun á tímabilinu, þrjú mörk og hreint lak. Við vorum sannfærandi en ekki fullkomnir, við getum spilað betur en þetta," sagði Ödegaard, sem var svo spurður hvort HM í sumar hafi hjálpað honum að komast í betra leikform með Arsenal.

„Síðasta tímabil var mjög erfitt fyrir mig útaf meiðslum en ég var að hrökkva í gang undir lokin og svo átti ég gott heimsmeistaramót í sumar. Það hjálpaði mikið og núna líður mér mjög vel eftir gott sumarfrí. Ég er á mjög góðum stað líkamlega og andlega.

„Takk fyrir að minna mig á að ég skoraði bara eitt mark í fyrra. Þetta var alvöru afgreiðsla hjá mér í dag, ég er búinn að vera að æfa þetta,"
sagði fyrirliðinn með glott á vör.

Sjáðu markið

Grikkinn Christos Tzolis var mjög líflegur á vinstri kantinum en tókst hvorki að skora né leggja upp þó hann hafi komið að tveimur mörkum í sigrinum þægilega.

„Hann var frábær í dag og hefur verið stórkostlegur allt undirbúningstímabilið. Hann er alltaf á iði svo það er mjög erfitt að verjast honum. Hann er virkilega gáfaður leikmaður sem finnur alltaf rétta sendingu við nánast hvaða aðstæður sem er."

Ödegaard er í byrjunarliðinu framyfir hinn öfluga Eberechi Eze sem var valinn í landsliðshóp Englands sem fór á HM.

„Við erum með ótrúleg gæði í liðinu, það sést á hverjum degi á æfingum. Við leggjum mikið á okkur og baráttan um sæti í byrjunarliðinu er raunveruleg."

„Viljum hafa sem mesta samkeppni um byrjunarliðssæti"
TENGT EFNI

„Viljum hafa sem mesta samkeppni um byrjunarliðssæti"

Ödegaard æfði afgreiðsluna
Canon

Mynd: EPA

Ödegaard æfði afgreiðsluna
Canon

Mynd: Arsenal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.