Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er mættur til Arsenal. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við enska stórliðið.
Hann kemur frá Dijon í Frakklandi og verður varamarkvörður fyrir Bernd Leno.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, fagnar komu íslenska markvarðarins.
„Við viljum skapa heilbrigða samkeppni um sæti í liðinu og okkur hlakkar til að sjá Alex koma með frekari breidd í markvarðarstöðuna," sagði Arteta við heimasíðu Arsenal.
Hjá Nordsjælland var markmannsþjálfari hans Inaki Cana en Mikel Arteta fékk hann á síðasta tímabili inn í þjálfarateymi sitt hjá Arsenal. Cana ráðlagði Arteta að sækja Rúnar Alex.
Athugasemdir