Heimaleikjum Gróttu og KR hefur verið víxlað í Pepsi Max deild karla en liðin eiga eftir að mætast tvisvar á tímabilinu.
Liðin mætast á fimmtudag og fer sá leikur nú fram á Meistaravöllum í Vesturbæ klukkan 16:15 á fimmtudag.
Síðari leikurinn verður á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi í lokaumferðinni 31. október.
Liðin mætast því á gervigrasi í lok október en ekki á grasvelli KR-inga.
Bæði lið eru í eldlínunni í dag en Grótta mætir ÍA á Akranesi klukkan 16:30 á meðan KR heimsækir Breiaðblik klukkan 19:15.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir