Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 21. október 2019 14:00
Magnús Már Einarsson
Tveir handteknir eftir leikinn þar sem lið gekk af velli
Mynd: Raggi Óla
Tveir menn, 23 ára og 26 ára, hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn á kynþáttafordómum í leik Haringey Borough og Yeovil í enska bikarnum um helgina.

Leikmenn Haringey gengu af velli í leiknum á laugardaginn eftir að markvörður liðsins varð fyrir kynþáttafordómum frá áhorfendum.

Atvikið átti sér stað eftir 64 mínútur en þá var staðan 0-1 fyrir gestunum í Yeovil.

Í morgun voru tveir menn handteknir vegna málsins og eru þeir nú í fangaklefa.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner