Fotbolti.net
21.10.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ekki einsdæmi að allir þrír markaskorararnir séu á 2. flokks aldri

Ungir markaskorarar Þórs.

Ungir markaskorarar Þórs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Á laugardag vann Þór 3-1 sigur á Stjörnunni í Bestu deildinni. Það vakti athygli að allir markaskorarar Þórs í leiknum voru á 2. flokks aldri. Sverrir Páll Ingason og Ásbjörn Líndal Arnarsson eru fæddir 2008 og Þorri Ingólfsson er fæddur 2009.
Víðir Sig: Sögulegt mark á síðustu sekúndu og tímamót hjá ÍBV, Þór og Stjörnunni
TENGT EFNI

Víðir Sig: Sögulegt mark á síðustu sekúndu og tímamót hjá ÍBV, Þór og Stjörnunni

Víðir Sigurðsson vakti athygli á því í samantekt sinni eftir umferðina að þetta sé ekki einsdæmi í efstu deild.

Úr pistli Víðis
Allir þrír markaskorarar Þórs í sigrinum á Stjörnunni, 3-1, eru leikmenn úr 2. flokki félagsins. Þeir Ásbjörn Líndal Arnarsson og Sverrir Páll Ingason, sem eru 18 ára og skoruðu báðir sitt fyrsta mark í efstu deild, og Þorri Ingólfsson, sem er 17 ára. Ég fékk fyrirspurn um hvort þetta væri einsdæmi í efstu deild karla og komst að því að svo er ekki, þó sjaldgæft sé.

Árið 1992 vann ÍA sigur á Víkingi, 3-1, þar sem allir markaskorararnir fjórir voru gjaldgengir í 2. flokk. Arnar Gunnlaugsson, Bjarki Gunnlaugsson og Þórður Guðjónsson skoruðu mörk Skagamanna en Helgi Sigurðsson skoraði mark Víkings. Þeir sem geta fundið hliðstæð dæmi eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við undirritaðan!
Tvíburarnir Arnar og Bjarki.

Tvíburarnir Arnar og Bjarki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.