Fotbolti.net
21.10.26 - 17:51
Brynjar Ingi Erluson

Kvaratskhelia: Af hverju ég?

Kvaratskhelia verður frá út tímabilið

Kvaratskhelia verður frá út tímabilið

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Georgíski vængmaðurinn Khvicha Kvaratskhelia verður ekki meira með á tímabilinu eftir að hafa slitið krossband í 4-2 sigri Evrópumeistara Paris Saint-Germain á Barcelona í Meistaradeildinni í gær.
Kvaratskhelia sleit krossband
TENGT EFNI

Kvaratskhelia sleit krossband

Kvaratskhelia lenti illa eftir baráttu við Xavi Espart, ungan leikmann Börsunga, og þurfti aðstoð við að komast af velli.

Í dag var staðfest að hann hefði slitið krossband og verður PSG því án eins af sínum mikilvægustu leikmönnum út tímabilið.

Kvaratskhelia er í áfalli yfir tíðindunum og á erfitt með að skilja hvers vegna þetta kom fyrir hann.

„Af hverju ég? Ég var ekki tilbúinn fyrir þetta. Margir hafa spurt mig út í það sem gerðist og sumir hafa sagt að ef allir fótboltamennirnir hefðu lagst á bæn hefði leikurinn endað með jafntefli. Það gæti vel verið, en fyrir hvern einasta leik bið ég Guð um að fá að ganga ómeiddur af velli. Í þetta skiptið varð mér ekki að ósk minni.“

„Það er stutt síðan þetta gerðist en ég get ekki hætt að hugsa um það. Af hverju ég? Ég hef aldrei látið neitt fram hjá mér fara og hef alltaf undirbúið mig eins vel og ég mögulega get. Ég hélt að ég væri tilbúinn fyrir allt, en svo reyndist ekki vera.“

„Ég hef áttað mig á því að Guð valdi mig og var að vernda aðra leikmenn á vellinum. Ég er tilbúinn að takast á við alla þessa mánuði af erfiðri vinnu, sársauka og tárum.“

„Ég veit að ég mun koma sterkari til baka fyrir fólkið sem hefur alltaf staðið með mér. Ég mun ekki bregðast ykkur og lofa að láta ekki eina einustu sekúndu fara til spillis. Takk fyrir allan stuðninginn og sjáumst bráðlega,“
sagði Georgíumaðurinn á Instagram í dag.


Kvaratskhelia: Af hverju ég?
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.