Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 21. nóvember 2022 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sannfærðir um að Garnacho skrifi undir
Mynd: EPA

Manchester United hefur verið í samningsviðræður við umboðsteymi Alejandro Garnacho síðan í júní.


Viðræðurnar þokast áfram og vilja Rauðu djöflarnir ganga frá samningsmálum fyrir áramót.

Hinn 18 ára gamli Garnacho rennur út á samningi næsta sumar og verður þá falur á frjálsri sölu.

Hann hefur sýnt flotta takta hjá Man Utd og vill félagið alls ekki missa táninginn frá sér.

Fabrizio Romano segir að heimildarmenn sínir innan herbúða Man Utd séu sannfærðir um að Garnacho muni skrifa undir samning fyrir áramót.  Félagið lítur á hann sem mikilvægan leikmann fyrir nútíð og framtíð félagsins.


Athugasemdir
banner
banner