Fotbolti.net
21.12.15 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Úr fótboltanum í UFC - Fylgir Gunnari Nelson í bardaga

Auglýsing
Gunnar Einarsson.

Gunnar Einarsson.

Canon

Mynd: Brandur

Fyrrum varnarjaxlinn Gunnar Einarsson lagði skóna á hilluna árið 2012 og eftir það hefur hann snúið sér að annarri íþrótt. Gunnar fór í stjórn bardagaíþrótta félagasins Mjölnis og hefur ferðast með nafna sínum Gunnari Nelson í bardaga í UFC.

Gunnar segir að nafni sinn sé orðinn gífurlega þekktur erlendis eftir þátttöku sína í UFC.

„Ég held að það sé einn knattspyrnumaður sem hefur náð sömu athygli úti á götu og það er Eiður Smári,\" sagði Gunnar.
Gunnar Einarsson spilaði með Leikni R. árið 2012 en þá var hann tímabundið þjálfari í síðustu þremur leikjum tímabilsins. Leiknir vann alla þrjá leikina og bjargaði sér frá falli á ævintýralegan hátt. Gunnar hafði þó ekki áhuga á að halda áfram í þjálfun.

„Mér gafst tækifæri á að vera áfram með Leikni en ég afþakkaði það. Það er mikið að gera hjá mér,\" sagði Gunnar.

Hér að ofan má hlusta á viðtalið við Gunnar í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.