Gladbach 4 - 2 Dortmund
1-0 Nico Elvedi(11')
1-1 Erling Haaland('22)
1-2 Erling Haaland('28)
2-2 Nico Elvedi('32)
3-2 Ramy Bensebaini('49)
4-2 Marcus Thuram('78)
1-0 Nico Elvedi(11')
1-1 Erling Haaland('22)
1-2 Erling Haaland('28)
2-2 Nico Elvedi('32)
3-2 Ramy Bensebaini('49)
4-2 Marcus Thuram('78)
Það fór fram virkilega fjörugur leikur í Þýskalandi í kvöld er Borussia Monchengladbach og Borussia Dortmund áttust við.
Bæði lið eru að berjast um Meistaradeildarsæti en Dortmund sat í fjórða sæti fyrir leikinn og Gladbach í því áttunda.
Það vantaði ekki upp á mörkin í þessum stórslag en heimamenn í Gladbach höfðu betur að lokum, 4-2.
Erling Haaland var besti maður Dortmund í leiknum en hann skoraði tvö í fyrri hálfleik og kom liðinu yfir í 2-1.
Gladbach gafst þó ekki upp og skoraði þrjú mörk eftir mörk Haaland og fagnaði að lokum sigri sem lyftir liðinu upp í fjórða sætið, yfir Dortmund.
Athugasemdir