Torino á Ítalíu er að skoða þann möguleika á að fá Gedson Fernandes til sín frá Benfica í Portúgal.
Frá þessu greinir blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio sem er með sterkar heimildir og þá sérstaklega á Ítalíu.
Fernandes spilar í dag með Tottenham á láni en dvöl hans þarf hefur ekki gengið upp og fær miðjumaðurinn lítið að spila.
Fernandes er 22 ára gamall og hefur nýr stjóri Torino, Davide Nicola, áhuga á að næla í leikmanninn í janúarglugganum.
Líklegt er að Fernandes vilji sjálfur komast annað en hann er ekki inni í myndinni hjá Jose Mourinho í London.
Athugasemdir