Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 22. janúar 2022 06:00
Fótbolti.net
Ótímabæra spáin fyrir íslenska boltann á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Efsta deild karla, Íslandsdeildin svokallaða, verður aðalmálið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Þátturinn er alla laugardaga milli 12 og 14.

Fyrsta ótímabæra spáin fyrir deildina verða opinberuð og þeir Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Sverrir Mar Smárason ræða um öll liðin tólf.

Deildin hefur aldrei hafist eins snemma og í ár enda á að fjölga leikjum með breyttu fyrirkomulagi. Opnunarleikurinn verður þann 18. apríl.

Í þættinum á morgun verður einnig farið yfir allar helstu fréttir vikunnar í boltanum.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner