Leicester vill fá miðjumanninn Boubakary Soumaré frá Lille í sumar en The Guardian segir frá þessu.
Hinn 21 árs gamli Soumare hefur vakið athygli með Lille í vetur en liðið er í toppsætinu í frönsku úrvalsdeildinni.
Hinn 21 árs gamli Soumare hefur vakið athygli með Lille í vetur en liðið er í toppsætinu í frönsku úrvalsdeildinni.
Manchester City, Manchester United og AC Milan eru á meðal félaga sem hafa verið að fylgjast með leikmanninum.
Soumaré á í sumar eitt ár eftir af samningi sínum við Lille og Leicester vonast til að geta nýtt sér það til að kaupa hann.
Leicester er á góðri leið með að landa Meistaradeildarsæti og félagið vonast til að ná samningum við Lille fyrir sumarið.
Athugasemdir