Fotbolti.net
22.02.21 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Redknapp: Aubameyang búinn að tapa ofurkröftunum

Redknapp: Aubameyang búinn að tapa ofurkröftunum
Canon

Mynd: Getty Images

Jamie Redknapp, stjóri Arsenal, telur að aldurinn sé farinn að segja til sín hjá Pierre-Emerick Aubameyang, framherja Arsenal.

Hinn 31 árs gamli Aubameyang skoraði þrennu gegn Leeds á dögunum en heilt yfir hefur hann ekki náð sér á strik á tímabilinu.
„Aubameyang er kominn yfir sitt besta. Hann mun eiga sín augnablik og skora einstaka þrennur. En þegar ég horfi á hann stundum þá er eins og hann hafi tapað ofurkröftunum sínum," sagði Redknapp.

„Ég sá hann hlaupa framhjá mönnum þegar hann kom fyrst í ensku úrvalsdseildina. Ég sá hann hlaupa framhjá mönum hjá Dortmund. Núna sé ég leikmann sem er verið að fara að tuska til."

„Hann er leiðtoginn en það eru menn eins og [Bukayo] Saka og [Emile] Smith Rowe sem eru að leiða liðið áfram."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.