Christian Eriksen: Gylfi er virkilega góður leikmaður
Auglýsing

Eriksen fagnar marki með Gylfa í leik með Tottenham árið 2013.

Mynd: Getty Images

„Ég þekki nokkra leikmenn í liðinu. Við höfum mætt þeim nokkrum sinnum áður og þetta er mikið til sömu leikmennirnir,\" sagði Christian Eriksen, stjarna danska landsliðsins, í samtali við Fótbolta.net í dag aðspurður út íslenska landsliðinu.
Ísland mætir Dönum á fimmtudag í næstsíðasta leiknum áður en hópurinn fyrir EM verður tilkynntur í maí. Eriksen telur að Ísland geti gert gott mót í Frakklandi.

„Þeir komu öllum á óvart með því að komast áfram. Þeir sýndu öllum að þetta er sterkt lið með gott hugarfar. Ég held að þeim eigi eftir að ganga ágætlega.\"
Eriksen hefur spilað með Tottenham frá því árið 2013 en þar voru hann og Gylfi Þór Sigurðsson liðsfélagar um tíma. Eriksen hrósar Gylfa í hástert.
„Gylfi er virkilega góður leikmaður. Við spiluðum saman hjá Spurs og hann stóð sig mjög vel. Því miður þurfti hann að fara til Swansea en hann er líklega besti leikmaður þeirra. Hann er mjög góður og klár leikmaður.\"
Eriksen reiknar með hörkuleik í Herning á fimmtudagskvöld. „Flestir landsleikir eru jafnir. Við erum með nýjan þjálfara á meðan þeir eru með sitt venjulega lið svo þarna mætast tveir mismunandi leikstílar.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.