Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. mars 2021 17:16
Magnús Már Einarsson
Guðjón Máni í Hauka (Staðfest)
Mynd: Daníel Þór Cekic
Haukar hafa fengið kantmanninn Guðjón Mána Magnússon í sínar raðir fyrir átökin í 2. deild í sumar.

Guðjón, sem er fæddur árið 1998, er uppalinn hjá Breiðabliki.

Undanfarin tvö ár hefur hann spilað með Fjarðabyggð í 2. deildinni en árið 2018 lék hann með Augnablik í 3. deild.

Guðjón Máni skoraði þrjú mörk í átján leikjum í 2. deildinni í fyrra en árið áður skoraði hann tvö mörk í átján leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner